Skip to main content

Ljósmyndun fyrir nýlegt hótel á Akureyri

Á Oddeyrinni á Akureyri er eitt af merkilegustu húsum bæjarins og það fékk nýlega nýtt hlutverk. Við fengum það verkefni að mynda Bryggjan Boutique Hotel, sem opnaði í Strandgötu 49 – byggingu sem á sér yfir 150 ára sögu og er meðal fallegustu húsa á Akureyri.

Boutique hotel er hugtak sem lýsir litlum, einstökum og oft lúxus hótelum þar sem lögð er áhersla á persónulega þjónustu, hönnun og sérstaka upplifun. Gestir sem velja slík hótel eru yfirleitt að leita að hlýju andrúmslofti og tengingu við staðinn sjálfan – eitthvað sem stærri hótelkeðjur ná sjaldan að endurskapa. 

Í verkefnum sem þessum leggjum við sérstaka áherslu á að ná:

  • Stemmingu og andrúmslofti staðarins
  • Karakter byggingarinnar
  • Flæði og tengingu milli rýma
  • Smáatriðum í hönnun og efnisvali

Markmiðið er að myndefnið nýtist ekki aðeins til kynningar heldur verði hluti af upplifun gestsins áður en hann mætir á staðinn.

Slíkar myndir henta sérstaklega vel fyrir:

  • Hótel og boutique gistingu
  • Airbnb og skammtímaleigu
  • Vefsíður og bókunarsíður (Booking, Airbnb o.fl.)
  • Samfélagsmiðla og markaðsefni

Hótelið fékk afhentar yfir 180 myndir sem gera þeim kleift að halda kynningarefni fersku og aðlagað að mismunandi miðlum. Reglulegar uppfærslur á myndum geta haft jákvæð áhrif á sýnileika á Airbnb, Booking og Google – en fyrst og fremst auka þær líkur á bókunum. Myndefnið nýtist einnig vel á samfélagsmiðlum til að halda efninu lifandi og viðhalda tengingu við gesti, sem getur haft óbein áhrif á sýnileika og árangur í bókunarkerfum.

Einnig var gert myndband fyrir vef Bryggjunar.

Myndband er öflug leið til að sýna rými á lifandi hátt og gefa raunverulega tilfinningu fyrir staðnum. Með mjúkum hreyfingum, góðri lýsingu og nákvæmri vinnslu er hægt að miðla andrúmslofti sem myndir einar og sér ná ekki alltaf.

Vantar myndir fyrir hótel eða aðra leigu?

Ef þú ert með íbúð, gistiheimili eða hótel sem þú vilt kynna betur, getum við hjálpað með markaðsefni sem hækkar gæði framsetningarinnar og eykur líkur á bókunum.

Við sérhæfum okkur í myndatökum og öðru markaðsefni fyrir:

  • Airbnb íbúðir
  • Boutique hótel
  • Gistiheimili
  • Sumarhús

Myndirnar eru unnar þannig að þær virki vel bæði á Airbnb, Booking, heimasíðum og samfélagsmiðlum.

Við vinnum verkefni um allt land.


Vignir Már Garðarsson
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Fylgdu okkur á Instagram