Hér má sjá dæmi um stærri verkefni sem við höfum tekið að okkur en einnig setjum við reglulega inn á Instagram síðuna okkar sem má skoða með því að smella á slóðina hér að neðan
Eitt af fyrstu 5 stjörnu hótelum á Íslandi. Hótelið er staðsett í Grímsnesi við Gullna hringinn, umlukið kjarri vöxnu landslagi á bökkum Sogsins, með stórbrotna fjallasýn í allar áttir. Tekið í tveimur heimsóknum og einstaklega skemmtilegt verkefni.
Glæsilegt hús á tveim hæðum á Suðurlandinu. Vorum fengin til að vinna fullt markaðsefni sem innihélt ljósmyndir, loftmyndir og myndbönd sem henta bæði fyrir stóra skjái og samfélagsmiðlana