
Fasteignaljósmyndun
Ljósmyndun fyrir sölu snýst um að sýna eignina á einfaldan og skýran hátt og í sýnu besta ljósi. Myndirnar eiga að hjálpa fólki að fá raunhæfa tilfinningu fyrir rýmunum og skipulaginu áður en komið er í sýningu. Oft eru myndir fyrsta kynni við eignina og því skiptir máli að þær gefi góða og heiðarlega yfirsýn. Miklu máli skiptir að velja rétt sjónarhorn miðað við rými og húsgögn, sýna tengingu rýma og að ýkja ekki þannig að myndirnar standist skoðun þegar komið er á staðinn. Við reynum því að láta eignina njóta sín án þess að reyna að stækka eignina með of mikilli vídd með linsunni.
Fasteignaljósmyndun styður þannig við kynningu eignarinnar með því að veita skýrar og áreiðanlegar upplýsingar í myndformi. Myndirnar eru ekki hugsaðar til að fegra eða breyta, heldur til að gera fólki kleift að taka upplýsta ákvörðun út frá raunhæfri mynd af eigninni. Þetta skiptir máli bæði fyrir kaupendur og seljendur, þar sem væntingar myndast oft löngu áður en fólk kemur í sýningu.
Undirbúningur eignarinnar fyrir myndatökuna er því gríðarlega mikilvægur til að ná að kynna eignina fyrir markaðnum í sínu besta ljósi. Mjög líklegt er að flestir séu á sínu hæsta tímakaupi við undirbúning myndatöku því eignir sem eru vel markaðssettar seljast undantekningarlaust á hærra verði.
UNDIRBÚNINGUR
Með því að fylgja þessum leiðbeiningum næst bestur árangur úr myndatökunni.
Það fyrsta sem þarf að ákveða er hvaða rými skal mynda. Mikilvægustu rýmin eru stofa, eldhús, baðherbergi og hjónaherbergi. Bílskúrar og þvottahús eru sjaldan mynduð nema ef lítið er af dóti og fínar innréttingar.
Oft er gott að nota þvottahús, geymslu eða jafnvel bílskúr til að flytja það sem ekki á að sjást á myndum í. Ef það er ekki mögulegt er gott að velja eitt herbergi til að flytja allt dót inn í og enda svo myndatökuna á því.
Almennt
- Skoðið lýsingu rýmisins. Dragðu frá gardínur og reyndu að hleypa eins mikilli náttúrulegri birtu og mögulegt er. Kveikið á öllum ljósum og lömpum.
- Gólfmottur geta látið rými virka minni á myndum svo gott er að fjarlægja þær. Þá er meira verið að horfa í stakar mottur á gangi t.d heldur en mottur við sófa eða undir borði.
- Fækkið eða fjarlægið flíkur úr fatahengi í forstofu og fjarlægið lausa skó. Vel raðaðir skór í hillu eru í lagi.
- Fjarlægið alla óþarfa hluti af gólfum, t.d gæludýrarúm/búr, vatnsskálar, leikföng, ruslafötur og annað slíkt.
- Hafið slökkt á tölvuskjám og loftviftum.
- Reynið að fela rafmagnssnúrur sem liggja í tæki eða lampa/ljós.
Eldhús
- Fjarlægið allt af ísskápshurð, eins og segla og minnisblöð.
- Fjarlægið smáhluti af eldhúsbekkjum. Ágætt er að hafa eitthvað þó t.d hrærivélina, kaffivél og fleira í þeim dúr.
- Fjarlægið uppþvottaefni, uppþvottabursta, þurrkgrindur og viskustykki.
- Fjarlægið eldhúsrúllur.
- Strjúkið af ofni, ísskápi og öðrum gljáflötum.
- Fjarlægið hluti ofan af skápum.
- Raðið stólum við borð.
Baðherbergi
- Fjarlægið allar vörur s.s sjampóbrúsa, tannbursta, raksköfur, hárblásara af skápum, baði og sturtu. Þó geta tvö/þrjú falleg ilmavatnsglös eða kerti lífgað upp á rýmið.
- Þrífið spegla.
- Dragið sturtuhengi frá ef það er til staðar. Oft er gott að fjarlægja hengi.
- Fjarlægið handklæði, bæði hangandi og af handklæðaofnum- einnig baðmottur.
- Samanbrotin handklæði mega vera á vaskaborði.
- Fjarlægið salernisbursta og ruslatunnu og settu nýja rúllu af salernispappír.
- Hafið salernissetu lokaða.
Svefnherbergi
- Hafið helst rúmteppi á rúmi en ef það er ekki til þá samstæð rúmföt.
- Fjarlægið allt af náttborðum nema þá eina bók eða lampa ef hann er til staðar.
- Fjarlægið föt af snögum og fatahengi.
- Takið dót ofan af skápum
- Lokið öllum skápum.
- Hafið kveikt á lömpum.
Stofa/Borðsstofa
- Stundum má fækka stólum eða öðru viðlíka í stofu til að opna rýmið. Ljósmyndarinn kemur með ábendingar ef slíkt hjálpar og færir til.
- Ef arinn er til staðar kveikið upp í honum rétt áður en ljósmyndarinn kemur.
- Takið fjarstýringar og slökkvið á sjónvarpi.
- Raðið stólum. Góð regla er að hafa aldrei stól með háu baki við enda borðs því hann lokar rýminu á mynd.
- Gangið frá púðum. Gott er að hafa ekki fleiri en einn/tvo púða í sófa.
Utandyra
- Takið til í garðinum og innkeyrslu/aðkomu. Fjarlægið óþarfa hluti eins og leikföng, hjól og garðverkfæri.
- Rúllið upp slöngum og raðaðu garðhúsgögnum.
- Sláið garðinn að sumri til. Ef snjór er að vetri er gott að moka aðkomu hússins.
- Færið bíla og annað færanlegt úr innkeyrslunni þannig að húsið sjáist óhindrað.
- Færið lausar ruslatunnur ef þær standa framan við hús.
Einbýli í Mosfellsbæ

Hér má sjá dæmi um myndir þar sem við mynduðum einbýlishús til sölu í Mosfellsbæ. Þarna var einstakt útsýni á miðað við hús á einni hæð og var verkefnið því að koma því til skila.




