Til að sýna landamörk, nýja pallinn, pottinn, gróðurinn eða útsýnið kemur fátt í stað loftmynda!
Loftmyndir gefa nýja og spennandi sýn á eignina og umhverfi sem fanga athygli væntanlegra kaupenda á algerlega nýjan hátt.
Þegar um stærri byggingar er að ræða sem væri erfitt að sýna með því að mynda frá jörðu kemur dróninn að góðum notum.
Síðustu ár hefur Fasteignaljósmyndun myndað flestar eignir fyrir stærstu fasteignafélög landsins s.s EIK og REGINN þar sem stærð eigna og staðsetning skilar sér ekki alltaf eingöngnu í ljósmyndum teknum af jörðu.
Við getum ábyrgst gæði þar sem við notumst við PRO dróna með hágæða Hasselblad myndavél til að taka okkar loftmyndir.